jæja þá fer að líða að enda elskendaferðarinnar miklu. Við komum heim núna á morgun. og my oh my hvað þetta er búið að vera skemmtileg ferð. í fyrsta lagi erum við í svítunni, sem myndi vera heví fabulous nema hvað að hún er bara lítil stúdíóíbúð. með aðeins 2 rúmum. engu að síður ætluð þrem leigjendum sem allir greiða fyrir svítu. ok svo núna kem ég bara með punkta.
- "svítan" var ekki tilbúin þegar við komum. þurftum að bíða í klukkutíma eftir herberginu því þernan hafði haldið sig til hér ásamt syni sínum, sem var fokkin leiðinlegur. Fokkin leiðinlegur!
- húsvörðurinn er alltaf að stara á okkur og spjalla. does not take a hint..
- svo kom einhver þjóðverji og bankaði hjá okkur og spurði hvort hann mætti horfa á Formulu 1 inni í okkar "svítu"! - heyrðu, þá hafði konan sem á hótelið bara sagt honum frá stóra flatskjánum okkar og stungið upp á þessu
- svo var verið að steypa hér fyrir utan og húvörðurinn var bara að nota vatnið út okkar vaski í verkið. með opið inn til okkar og fokkin sonur þernunnar var vaðandi ásamt vini sínum inn og út úr herberginu okkar. WTF
- húsvörðurinn sló mig á hendina og skammaði fyrir að læsa okkur úti fyrsta daginn.
margt klikkað gerðist í ferðinni utan svítunnar. nú til að mynda vorum við eltar um allt strikið af umrenningi með lepp. hann lagðist alltaf í pósu þegar við litum við. svo hljóp hann heví meðan við löbbuðum og flegði sér á stéttina i pósu þegar við svo litum aftur fyrir okkur.
vegna góðra meðmæla (fuck you guys sem sögðuð okkur að fara þangað) ákváðum við að kíkja á sams bar. Þar var glatað. píur með sleave tattú og allir að syngja alanis morrisett lög.
Athygli okkar vakti strax skank nokkurt því hún var með ljótustu hárlengingu EVER. og í varla nokkrum fötum. Ekki tók þó betra við, því innan stundar var hún komin upp á barborðið og dansaði þar. á augabragði (og að mér sýndist, með einu handtaki) reif hún sig úr að neðan, og dansaði svo með útglennt klofið framan í okkur bargestina. Þetta líkaði okkur ekki svo við ákváðum að fara. tattúpíurnar voru samt alveg að fíla þetta dæmi.
og hey, andri og Hafii, við mælum eindregið með að þið farið í vatnsrússíbanann í tívílínu og gistið á þessu hóteli. Og að þið látið skjóta ykkur í mænuna.
nú við fórum á djammi og kíktum að svaka stað sem hét Kulör bar. mikið fjör. þar sáum við mann sem héðan í frá verður aðeins þekktur sem Dansarinn. hann dansaði eins og vilji guðs veitti honum innblástur. hann var betri en Michael Jackson og Justin timberlake og Usher combined.
núú eftir að hafa leitað að Pálma eins og nál í heystakk hér í köben náðum við loksins í hann og skemmtum okkur vel. haha við fórum á einhvern sóðlegasta bar ever og Nonni var þar að dæla í Jukeboxið. setti held ég hundraðkall og fékk að velja einhver 50 lög.
haha á þessum sama sóðabar gerðist margt skemmtilegt. nú barþjónninn hataði Nonna útaf engu (segir hann) og gaf honum aldrei neinn afgang þegar hann var að borga fyrir drykki. Við kláruðum allan Heinikeninn, Breezerana og sígaretturnar. Og Nonni braut tvo stóla, sem var ekki til að bæta á vinsældir hans hjá barþjóninum.
ein gömul kona sat ein að sumbli á barnum. hún var alltaf að tala á dönsku við Pálma og skamma hann, en hann hélt að hún væri þvílíkt að fíla sig, var alltaf bara að reyna að tala við hana og sagði alltaf jeg kommer, jeg kommer nu við hana þegar hún sat og öskraði á hann. hann náði ekki hintinu fyrr en hún tók hann hálstaki og klóraði hann til blóðs.
hehe ég og sandra tróðum okkur og hrintum ttveim litlum strákum til þess að geta setið alveg aftast í rússíbananum
nú hápunktur ferðarinnar var að sjálfsögðu það að Paris Hilton var líka í tívólíinu. sandra tryllist og tróð sér fremst ásamt æstum blaðamönnum. Að hennar sögn náði hún eye-contackt... (æj please)
nú svo er það komið að setningum ferðarinnar:
- æj, Please
- orðið "disööööstíng"
- klesstann
- im blue, gonna beat up a guy (blue lagið frá 1999 (dabbadí dabbadæ))
- one time i sucked six dirty dicks in a row
- plus, im hungry for shit
- jájájá double penetration? ég hef gert það..
- já er það virkilega...?
- æj, please
- sandra gaf mér rónaskinn
- sökker
- the hiking viking
- trúðabrúðan vs. prúðabrúðan
- lady in reeeeeed
- fokk, eg er komin með annað stungusár.. (hahaha sandra "got stabbed" af moskító flugu)
okok langt blogg. myndir koma síðar. samt nokkrar komnar á myspace hjá dansý.
Hilsen, Baby Jesus, sandra og dagný